Frekar löng lýsing á mjög einföldum hlut
Hvað gerir þú?
Þú skráir vini þína á vinalistann þinn í Skelinni og hvetur þá til að sækja um tryggingu hjá Elísabetu svo þú fáir mánaðargjald endurgreitt sem fyrst. Því fleiri vinir, því fleiri ókeypis mánuðir. Því miður er ekki hægt að skrá sig sjálfa(n) sem vin.
Hvað gerir vinur þinn?
Vinir þínir sækja um tryggingu hjá Elísabetu (og geta þá lækkað tryggingarnar sínar um tugi þúsunda) og þegar vinur þinn hefur haft útgefna bílatryggingu í 3 mánuði færð þú einn mánuð endurgreiddan. Vinur þinn verður að sækja um tryggingu hjá Elísabetu innan mánaðar frá því þú skráir nafn hans á vinalistann. Þegar mánuður er liðinn án þess að vinur þinn hafi sótt um tryggingu hjá Elísabetu, getur annar viðskiptavinur Elísabetar skráð þennan sama einstakling sem vin á sinn lista eða þú skráð nafn hans aftur á þinn lista. Athugaðu að það er nóg að vinur þinn sæki um tryggingu og fái biðtryggingu til þess að hann detti ekki útaf listanum. Þegar svo biðtryggingin verður að útgefinni tryggingu, byrja 3 mánuðirnir að telja þangað til þú færð frían mánuð.
Hvernig virkar þetta?
Vinir geta verið á vinalista í mesta lagi einn mánuð í senn og falla þá sjálfkrafa út af honum. Hægt er að skrá þá inn strax aftur.
Hafi vinur þinn þegar sótt um bílatryggingu hjá Elísabetu getur þú ekki skráð nafn hans á vinalistann þar sem þetta nær einungis til aðila sem eru nýir í viðskiptum hjá Elísabetu.
Ef þú hættir í viðskiptum hjá Elísabetu missir þú af endurgreiðslum þó svo vinir af listanum þínum gerist viðskiptavinir Elísabetar, enda ekki hægt að endurgreiða það sem ekki er greitt.
Um leið og vinur þinn hefur fengið útgefna tryggingu hjá Elísabetu getur hann sjálfur farið að safna á sinn vinalista til að fá frítt mánaðargjald.
Einungis viðskiptavinir með útgefna tryggingu hjá Elísabetu geta fengið mánaðargjaldið endurgreitt. Ekki er nóg að vera með biðtryggingu eða lán í vinnslu.
Hvernig skráir þú vini á listann?
Inni í skelinni er hægt að skrá nöfn tíu vina sem eru á listanum í mánuð í senn. Þegar þú hefur skráð vini þína á listann er gott að láta þá vita og hvetja þá til að ganga frá tryggingunni. Elísabet veitir þér margs konar aðstoð við það.
- Skrá þarf nafn og kennitölu vinar
- Skráningin vistast og er borin saman við kennitölur einstaklinga sem sækja um tryggingar hjá Elísabetu.
- Þegar vinur þinn hefur verið með útgefna tryggingu hjá Elísabetu í þrjá mánuði fær hann merkingu í dálknum “Hefur skilað frímánuði”.
- Vinur þinn verður að sækja um tryggingu hjá Elísabetu innan mánaðar frá því þú skráir nafn hans á vinalistann. Þegar mánuður er liðinn getur annar viðskiptavinur Elísabetar skráð þennan sama einstakling sem vin á sinn lista eða þú skráð nafn hans aftur á þinn lista.
Spurt og svarað um afsláttaleiðina
Er hægt að skrá aðila tvisvar á sama vinalista?
Svar: Já. Vinur þinn getur verið á listanum þínum í einn mánuð en dettur þá sjálfkrafa út. En þú getur hins vegar sett hann aftur inn.
Hvað ef vinur minn er fastur hjá öðru einhverjum af gömlu tryggingafélögunum, fæ ég þá endurgreitt?
Svar: Þegar vinur þinn sækir um tryggingu hjá Elísabetu en er fastur hjá öðru tryggingafélagi fær hann biðtryggingu hjá Elísabetu. Þegar hann losnar frá gamla tryggingafélaginu er tryggingin gefin út hjá Elísabetu. 3 mánuðum síðar færð þú mánaðariðgjald endurgreitt.
Geta tveir verið með sama aðilann skráðan á sína vinalista?
Svar: Nei, þess vegna er mikilvægt að þú skráir strax þá sem þú heldur að verði auðvelt að fá yfir til Elísabetar.
Hvað ef ég hætti í viðskiptum hjá Elísabetu, fæ ég samt ennþá endurgreitt þegar vinir mínir koma í viðskipti til Elísabetar?
Svar: Nei, vegna þess að þegar þú hættir í viðskiptum hættir þú að greiða og það er ekki hægt að endurgreiða það sem ekki er greitt.
Hvað ef ég næ 10 vinum inn á fyrsta degi, fæ ég þá endurgreitt tífalt mánaðargjald um næstu mánaðarmót?
Svar: Ef þú nærð inn 10 nýjum viðskiptavinum ertu snillingur... og verður á ókeypis tryggingum næstu 10 mánuði. Þú færð þá eitt mánaðargjald endurgreitt í hverjum mánuði en ekki allt út í einu, því ekki hægt að endurgreiða það sem ekki hefur verið greitt.
Til baka
